– Hefirðu komið í Þykkvabæinn?
Nei, þangað hafði ég ekki komið.
– Þá verðurðu að fara þangað. Þetta er merkilegasti staðurinn á öllu Suðurlandi. Þessi staður, sem var að því kominn að fara í auðn fyrir nokkrum árum, á nú glæsilega framtíð fyrir sér. Og þar hafa verið unnin þrekvirki, sem þú ættir að kynnast. (Árni Óla, 1000 Ára Sveitaþorp, 1962, bls. 7).